Inga Ósk Rúnarsdóttir hefur verið ráðin sem þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarmála. Inga Ósk hefur nú þegar hafið störf. Inga er með BA gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og sveinspróf frá Iðnskólanum í Hafnarfirði sem hársnyrtir og framreiðslu frá Hótel og veitingaskólanum.
08.01.2025
Nýr starfsmaður skipulags- og framkvæmdasviði.
Inga Ósk hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, hún starfaði áður hjá Brimborg sem þjónustufulltrúi, verslunarstjóri Eirberg og móttökuritari hjá Mannvit nú Cowi á Reyðarfirði.
Við bjóðum Ingu Ósk hjartanlega velkomna til starfa.