Loðnuvinnslan, LVF, hélt glæsilega móttökuathöfn í gær í tilefni af komu nýs Sandfells SU 75 til heimahafnar á Fáskrúðsfirði.
Móttökuathöfnin fór fram á veitingastaðnum l'Abri á Franska spítalanum og var þar fjöldi gesta samankominn af þessu ánægjulega tilefni. Athöfnin hófst á því að sr. Jóna Kristín Þorvaldsóttir, blessaði nýja bátinn, sem lá við frönsku bryggjuna sunnan við Franska spítalann.
Sandfell SU 75 er yfirbyggður línuveiðibátur og glæsileg viðbót við starfsemi Loðnuvinnslunnar.
Hér að neðan má sjá nokkrar svipmyndir úr móttöku bátsins.
Fleiri myndir:Friðrik Mar Guðmundsson, forstjóri LVF, býður gesti velkomna.Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, afhenti blóm í tilefni dagsins. Hér tekur Elvar Óskarsson, varaformaður stjórnar LVF, við glæsilegum vendi.Loðnuvinnslan bauð til glæsilegrar móttöku í tilefni af komu Sandfells til heimahafnar.Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir sóknarprestur á Fáskrúðsfirði flutti stutta hugvekju.Sandfell SU 75 nýjasta viðbótin við skipaeign, LVF er yfirbyggður línuveiðari.