Vonsku veðri er spáð á í fyrramálið, mánudaginn 27. mars og hætt er á að færð gæti spilst. Vegna þessa er óvíst að hægt verði að aka samkvæmt áætlun í almenningssamgöngukerfi Fjarðabyggðar, en ákvarðanir varðandi það verða teknar snemma í fyrramálið.
Tilkynningar varðandi akstur verða sendar út fyrir kl. 6:30 í fyrramálið á heimasíðu Fjarðabyggðar og á samfélagsmiðlum.