mobile navigation trigger mobile search trigger
17.11.2022

Rithöfundalest(ur) á Austurlandi 2022

Austfirskir höfundar fylla lestina í ár
- Rithöfundalest(ur) verður í Skaftfelli á Seyðisfirði föstudaginn 18. nóvember klukkan 19:00
Skaftfell hlakkar til að bjóða þau Benný Sif Ísleifsdóttur, Jónas Reyni Gunnarsson, Smára Geirsson, Rangar Inga Aðalsteinsson og Jón Pálsson velkomin á föstudaginn.
Rithöfundalest(ur) á Austurlandi 2022
Rithöfundar verða á ferð um Austurland 17. - 20. nóvember að kynna verk sín venju samkvæmt. Að þessu sinni verður Rithöfundalestin alfarið austfirsk þar sem allir höfundar eiga rætur eða eru búsettir á Austurlandi. Kjarna lestarinnar mynda fjórmenningarnir: Benný Sif Ísleifsdóttir með skáldsöguna Gratíana sem er framhald Hansdætra; Jónas Reynir Gunnarsson með skáldsöguna Kákasus-gerillinn; Smári Geirsson með stórvirkið Sögu Fáskrúðsfjarðar; og Ragnar Ingi Aðalsteinsson með þrjú verk, Líkið er fundið - sögur af Jökuldal, kvæðasafn systkinanna frá Heiðarseli og bók um Skáld-Rósu.
Aðrir höfundar sem stíga um borð í lestina á mismunandi stöðum eru: Unnur Sveinsdóttir með barnabókina Skotti og sáttmálinn; Ásgeir Hvítaskáld með skáldsögu byggða á sönnum atburðum, Morðið í Naphorni; Jón Pálsson með glæpasöguna Skaðræði; Jón Knútur Ásmundsson með ljóðabókina Stím; Anna Karen Marinósdóttir með ljóðabókina Kannski verður allt í lagi; og Björn Ingvarsson með þýðingar á ljóðum Inúíta.
Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Forlagsins, Bílaleigu Akureyrar og Gistihússins á Egilsstöðum.
Allar upplýsingar um viðburðina er að finna á Facebook-síðum samtarfsaðilanna.
Upplestrarsamkomur Rithöfundalestarinnar 2022:
Fimmtudaginn 17. nóv. á Vopnafirði í Uss Bistro Kaupvangi kl. 20:30
Föstudaginn 18. nóv. í Skaftfelli Seyðisfirði kl. 19:00;
Laugardaginn 19. nóv. í Safnahúsinu í Neskaupstað kl. 14:00 og í Löngubúð á Djúpavogi kl. 20:00
Sunnudaginn 20.nóv. á Skriðuklaustri kl. 13:30 - viðburðinn verðu líka í streymi. 
https://www.facebook.com/events/841674923698926

Frétta og viðburðayfirlit