mobile navigation trigger mobile search trigger
04.06.2021

Samstarfssamningur við Krabbameinsfélag Austfjarða

Í dag var ritað undir samstarfssamning Fjarðabyggðar og Krabbameinsfélags Austfjarða. Samningurinn felur í sér stuðning Fjarðabyggðar við félagið, og samstarf um lífstílstengdar forvarnir og fræðslu meðal starfsmanna Fjarðabyggðar.

Samstarfssamningur við Krabbameinsfélag Austfjarða
Hrefna Eyþórsdóttir og Jón Björn Hákonarson takast í hendur að lokinni undirskrift samningsins í dag.

Með samningnum leggur Fjarðabyggð Krabbameinsfélaginu til 500 þúsund krónur á ári næstu þrjú árin. Krabbameinsfélagið mun í staðinn koma að fastri árlegri fræðslu á sviði forvarna hjá starfsmönnum sveitarfélagsins, auk fleiri þátta í fræsðlu- og fornarvarnamálum.

Það voru þau Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða, sem skrifuðu undir samninginn í dag.

Frétta og viðburðayfirlit