Föstudaginn 29. September fór fram slökkviliðsæfing hjá slökkviliði Fjarðabyggðar í samstarfi við Brunamálaskóla við slökkvistöðina á Hrauni við Reyðarfjörð.
Slökkvilið Fjarðabyggðar hefur verið undanfarin misseri í markvissum uppbyggingarfasa og Brunamálaskólinn í endurskipulagningu á sínu þjálfunarfræðum.
Hér gafst gott tækifæri til að prófa nýjar aðferðir í þeim þjálfunarfræðum með það að markmiði að efla sjálfstraust og getu slökkviliðsmanna og halda áfram þeirri vinnu að byggja upp öflugt atvinnumannaslökkvilið með sterka liðsheild.
Uppsetning æfingarinnar byggir á viðurkenndum þjálfunarfræðum viðbragðsaðila en þessar gerðir æfinga verða stór þáttur í nýrri kennsluskrá Brunamálaskólans. Var þetta fyrsti hópurinn sem fær að láta á hana reyna.
Þátttakendur á æfingunni fengu allar forsendur fyrir fram upp gefnar og ekkert á að koma á óvart á meðan á æfingunni stendur.
Með því að láta þátttakendur fá handrit, og allir gera sér grein fyrir verkþáttunum er krafan sú að allir séu með sitt á hreinu þegar kemur að framkvæmdinni.
Þema æfingarinnar var bráðaviðbragð við staðbundnum bruna í byggingu.
Áherslur voru lagðar á vettvangsmat, tafarlausa lífsbjörgun, endurmat, slökkvitækni, árás utan frá, stiga, reykköfun, móttaka sjúklinga og Mayday í því felst þegar slökkviliðsmaður slasast við störf.
Brunaæfing Brunamálaskólans er hluti af þeim uppbyggingarfasa hjá atvinnumannaslökkvilið Fjarðabyggðar og tengist vel nýju fyrirkomulagi á reglubundnum æfingum hjá vöktum slökkviliðsins. Því fyrirkomulagi var komið á í byrjun sumars undir handleiðslu Höskuldar Einarssonar, sérfræðings hjá Bráðalausnum. Reglubundnu vaktaæfingarnar hafa reynst vel á meðal slökkvimanna og mikil ánægja er með það.