mobile navigation trigger mobile search trigger
28.01.2025

Snjómokstur þriðjudaginn 28. janúar

Snjómokstur gengur samkvæmt áætlun og hófst í morgun og allar götur eru færar. 

Snjómokstur þriðjudaginn 28. janúar

Áhersla er lögð á sjómokstur á þjónustuleið eitt og tvö.

Tilhögun snjómoksturs er eftirfarandi:
👉Þjónustuleið 1 – Aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur
👉Þjónustuleið 2 – Aðrar tengibrautir og safngötur, með minni umferð, eru þjónustaðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt.
👉Þjónustuleið 3 – Húsagötur og fáfarnar safngötur er þjónustuðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt og tvö.

Snjómoksturinn er í sífeldri skoðun á framkvæmdasviði Fjarðabyggðar og vel fylgst með stöðu mála.

Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.

Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi bílum sínum ekki þannig að það tefji fyrir snjómokstri.

Fyrir frekari upplýsingar um tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Fjarðabyggð er bent á verklagsreglur sem finna má á heimasíðunni með því að smella hér. Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.

Við minnum á að hægt er að koma ábendingum varðandi snjómokstur á framfæri inná ábendingagátt Fjarðabyggðar.

Sorphirða komin á áætlun

Íbúar eru hvattir til að moka frá sorpgeymslum sínum til að greiða leið sorphirðufólks að tunnunum þannig að hægt sé að tryggja að þær séu tæmdar. Ef aðgengið að tunnunum er ekki greiðfært þegar sorpbíllinn er á ferð um hverfið eru tunnurnar ekki tæmdar fyrr en við næstu losun samkvæmt sorphirðudagatali. Takk fyrir skjót viðbrögð!

Allt um sorphirðu

Frétta og viðburðayfirlit