Alþjóðlegi snjódagurinn, SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD, verður sunnudaginn 17. janúar og verður honum að sjálfsögðu fagnað með viðeigandi hætti á skíðasvæðinu í Oddsskarði.
Alþjóðlegi snjódagurinn í Oddsskarði
17.01.2016
![Alþjóðlegi snjódagurinn í Oddsskarði Alþjóðlegi snjódagurinn í Oddsskarði](/media/world-snowday.jpg?w=600)
Boðið verður upp frábærar brekkur, frábært veður, heitt og gott kakó, auk þess sem freistandi tilboð verður á súpu og vöfflum.
Einnig verður boðið upp á skíðakennslu fyrir byrjendur. Kennslan verður við barnalyftu milli kl. 12:00 - 14:00.
Ekki missa af alþjóðlega snjódeginum í Oddsskarði.