Sökum ófærðar sem verið hefur undanfarnar vikur er sorphirða á eftir áætlun. Byrjað verður á Norðfirði í dag að tæma gráu tunnuna og svo er haldið áfram eftir dagatalinu.
Það eru vinsamleg tilmæli til íbúa að moka frá tunnum og sanda/salta ef mikil hálka er til að auðvelda tæmingu.