Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, óskaði eftir því á fundi bæjarráðs í morgun að láta af störfum sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Bæjarráð varð að ósk Jóns og munu starfslok hans verða í mars.
Fjarðabyggð þakkar Jóni Birni vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Vinna er þegar hafin við ráðningu nýs bæjarstjóra. Tilkynning varðandi það verður send út síðar.
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Þór Eysteinsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar seysteinsson@gmail.com eða í síma 858 5026