Sorphirða hefur því miður ekki gengið sem skyldi síðustu tvær vikurnar vegna veikinda hjá Kubbi. Fyrirséð er að einhver töf verði áfram út næstu viku en þá er vonast til að sorphirða verði komin á rétt ról og hefðbundin dagskrá standist. Beðist er velvirðingar á þessum ófyrirséðu töfum og þeim óþægindum sem þær kunna að valda.
Íbúar og eigendur fasteigna eru einnig minntir á með auknum snjó er mikilvægt að mokað sé vel frá sorphirðuílátum svo þau séu aðgengileg.