Vegna framkvæmda gæti orðið einhver röskun á sorphirðu við Skólaveg á Fáskrúðsfirði
25.08.2017
Tafir á sorphirðu við Skólaveg á Fáskrúðsfirði
Framkvæmdir við götuna geta í sumum tilfellum komið í veg fyrir að sorpbíll geti athafnað sig við götuna. Þær tunnur sem ekki tekst að tæma munu verða losaðar við fyrsta mögulega tækifæri.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.