Fjarðabyggð heldur 17. júní hátíðlegan í ár í samstarfi við Þrótt Neskaupstað. Glæsileg dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna og ættu allir að getað fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þjóðhátíð í Fjarðabyggð - Hátíðahöld vegna 17. júní í Neskaupstað
Klukkan 13:30 leggur Skrúðganga af stað frá bílaplaninu við VA. Gengið verður sem leið liggur á íþróttavöllinn í Neskaupstað þar sem hátíðardagskrá hefst.
Þar verður meðal annars boðið upp á:
- Ávarp bæjarstjóra
- Ávarp fjallkonunnar
- Tónlistaratriði
- Hoppukastalar
- Sprell, fjör og leikir
- Þrautabraut
- Veitingar
Nánari upplýsingar má einnig finna á Facebook viðburði sem finna má með því að smella hér
Einnig verður frítt í sund í Stefánslaug í Neskaupstað þennan dag
Eins og venjulega verður boðið verður upp á fríar sætaferðir úr öllum byggðakjörnum Fjarðabyggðar á hátíðahöldin.
Frá Breiðdalsvík að hátíðarsvæðinu í Neskaupstað
Hótel Bláfell - Breiðdalsvík - 11:15
Brekkan - Stöðvarfirði - 11:38
Skrúður – Fáskrúðsfirði - 12:00
Kirkjugarðurinn Fáskrúðsfirði - 12:03
Orkuskálinn Reyðarfirði - 12:25
Molinn – Reyðarfirði - 12:30
Austurvegur/Barkurinn Reyðarfirði - 12:33
Valhöll – Eskifirði - 12:50
Shell – Eskifirði - 12:53
Sundlaug Eskifjarðar - 12:56
Neskaupstaður – VA - 13:25
Brottfaratími frá hátíðarsvæðinu í Neskaupstað er kl. 16:20. Ekið er sömu leið til baka með viðkomu á sömu stoppistöðvum.
Nánari upplýsingar um þær verður hægt að nálgast inn á www.fjardabyggd.is og visitfjardabyggd.is