mobile navigation trigger mobile search trigger
17.09.2021

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 17. september

Greiningu sýna sem tekin voru í gær á Reyðarfirði í tengslum við Leikskólann Lyngholt er að ljúka. Að minnsta kosti þrjú ný smit hafa bæst við, en unnið er að því að ljúka greiningu sýnanna. Alls eru því 19 manns á Austurlandi í einangrun, þar af 13 í tengslum við smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar og í Lyngholti, og talsverður fjöldi í sóttkví. Smitrakning er í fullum gangi og verður framhaldið í dag, þannig að fjöldi þeirra sem eru í sóttkví gæti aukist þegar líður á daginn.

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 17. september

Vegna þessara nýju smita hefur verið ákveðið að allir nemendur í 4. – 10. bekk í Grunnskóla Reyðarfjarðar verði beðnir að mæta í sýnitöku á Heilsugæsluna á Reyðarfirði  í dag, föstudaginn 17. september , kl. 12 . Aðrir sem hafa einkenni, eða telja sig hafa verið í samskiptum við smitaðan aðila eru einnig hvattir til að mæta í sýnatöku í dag.

Smitrakning vegna þeirra smita sem greinst hafa að undanförnu er enn í gangi. Nánari upplýsingar um skólastarf í Grunnskóla Reyðafjarðar og Lyngholti verða kynntar í ljósi niðurstöðu úr sýnatöku sem fram fer í dag. Tilkynningar verða gefnar út varðandi það um helgina og er fólk hvatt til að fylgjast með tölvupósti og heimasíðu Fjarðabyggðar varðandi það, sem og á vef lögreglu og fésbókarsíðu.

Framundan er helgi og aðgerðastjórn vill hvetja til ítrustu varkárni í ljósi aðstæðna á viðburðum helgarinnar og samkomuhaldi. Fólk er hvatt til að huga vel að persónubundnum sóttvörnum. Mikilvægt er að mæta ekki á fjöldasamkomu ef einkenni gera vart við sig, halda sig þá heima og bóka sýnatöku á heilsuvera.is. Bíða niðurstöðu heima við og fara áfram að öllu með gát, jafnvel þó niðurstaðan reynist neikvæð.

Frétta og viðburðayfirlit