mobile navigation trigger mobile search trigger
21.09.2021

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 21. september

Alls greindust þrjú smit úr sýnatöku gærdagsins, öll voru þau innan sóttkvíar. Góð þátttaka var í sýnatöku í dag á Reyðarfirði, þar sem um 200 sýni voru tekin, en stór hópur sem var í sóttkví þar fór í síðari skimun. Því miður er óljóst með flugferðir og landsamgöngur í dag vegna veðurs og því ekki ljóst hvort sýnin komist til Reykjavíkur til greininga fyrr en í fyrramálið. Rétt er að árétta að sóttkví gildir þar til niðurstaða úr sýnatökunni berst.

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 21. september

Ljóst er að ákvarðanir varðandi skólahald á Reyðarfirði verða því ekki teknar fyrr en í fyrsta lagi seinni partinn á morgun þegar niðurstöður úr sýnatöku dagsins liggja fyrir. Tilkynning um skólahald verður send um leið og niðurstöður berast.    

Á morgun kl. 12:00 verða hraðpróf á Heilsugæslunni á Reyðarfirði fyrir þann hóp sem verið hefur í smitgát.  

Íbúar eru áfram hvattir til að fara í sýnatöku finni þeir til einhverra einkenna eða telja að þeir hafi verið í samskiptum við smitaðan einstakling.

Opnir tíma í hraðpróf og PCR próf eru sem hér segir:

Reyðarfjörður:

Hraðpróf 8:30-9:30

PCR 9:30-10:30 alla virka daga. Lokað um helgar.

Egilsstaðir:

Hraðpróf 11:30-12:30,

PCR 12:30-13:30 alla virka daga + Sunnudaga. Lokað á Laugardögum

Frétta og viðburðayfirlit