Þrír eru í sóttkví á Austurlandi vegna COVID-19. Enginn er í einangrun.
Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 4. maí
![Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 4. maí Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 4. maí](/media/almannavarnir.jpg?w=600)
Aðgerðastjórn finnur fyrir létti íbúa vegna jákvæðrar þróunar COVID mála og haftalosunar. Sú þróun mun vonandi halda áfram.
Til að stuðla að henni hvetur aðgerðastjórn íbúa til að hafa varann á sem fyrr og fylgja öllum þeim leiðbeiningum sem enn eru til staðar. Bent er á að hjarðónæmi er ekki fyrir hendi og við því jafn útsett fyrir smiti og í upphafi faraldursins.
Aukin ferðalög og hreyfingar fólks milli landshluta, á lofti, láði eða legi, auka einnig hættu á smiti.
Höldum því áfram að gæta okkar, fylgjum tveggja metra reglunni, munum handþvottinn og munum sprittið. Þannig tryggjum við okkur sjálf og þá sem í kringum okkur eru og stuðlum jafnframt að áframhaldandi auknu frjálsræði í leik og starfi.
Gerum þetta saman, ekki síður nú en fyrir 4. maí.