Þessa daganna er unnið við klapparlosun á framkvæmdasvæðinu við snjóflóðavarnarmannvirkin í Neskaupstað. Íbúar gætu orðið varir við sprengingarnar á meðan þessari vinnu stendur núna í lok apríl og maí.
Við þessa vinnu er fyllsta öryggis gætt:
- Settir verða upp fjórir skjálftamælar til að fylgjast með sprengingum.
- Tímasetningar sprenginga verða fastsettar á tveimur tímabilum.
- Annars vegar á milli 11.00 og 12.00 og hins vegar á milli 16.00 og 17.00.
- Verktaki mun rýma skilgreint öryggissvæði fyrir hverja sprengingu.
- Verktaki mun gefa þrjú löng hljóðmerki fimm mínútum áður en sprengt er og eitt langt hljóðmerki þegar búið er að sprengja
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar