Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hófst á skrifstofum embættis sýslumannsins á Austurlandi þriðjudaginn 19. apríl. Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar á opnunartíma sýsluskrifstofa, mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00-15:00, en föstudaga kl. 09.00-14.00.
Frá mánudeginum 25. apríl veður hægt að kjósa hjá kjörstjórum í Fjarðabyggð auk þess sem opnunartími skrifstofa embættisins á Egilsstöðum og Eskifirði verður lengdur til kl. 17:00 síðustu tvær vikur fyrir kjördag.
Skrifstofur embættisins eru á eftirtöldum stöðum:
- Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði.
- Strandgötu 52, Eskifirði.
- Lyngási 15, Egilsstöðum.
- Lónabraut 2, Vopnafirði. Kjörstjóri er Nikulás Árnason, sími 897-0017.
Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini).
Frá mánudeginum 25. apríl veður hægt að kjósa hjá eftirtöldum kjörstjórum í Fjarðabyggð:
Norðfjörður: Óskar Ágúst Þorsteinsson, sími 841-8349
Reyðarfjörður: Aðalheiður Vilbergsdóttir, sími 843-7706
Fáskrúðsfjörður: Jóna Petra Magnúsdóttir, sími 848-4543
Stöðvarfjörður: Svanhvít Björgúlfsdóttir, sími 861-1991
Breiðdalur: Sigurður Borgar Arnaldsson, sími 868-5129
Auk kosninga á skrifstofum embættisins er hægt að kjósa í Múlaþingi sem hér segir frá og með mánudeginum 25. apríl:
Á Djúpavogi: Mánudaga og miðvikudaga frá 13:00 - 15:00 en föstudaga frá 10:00 - 12:00.
Borgarfjörður: Mánudaga til fimmtudaga frá 8:00 - 12:00 og 13:00 - 16:30, föstudaga frá 8:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00.
Sýslumaðurinn á Austurlandi
25. apríl 2022
Lárus Bjarnason, sýslumaður