Þann 21.mars var rúmum 11 milljónum úthlutað úr frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar. Alls bárust 23 umsóknir og heildarkostnaður verkefna er tæplega 37 milljónir en heildar upphæð umsókna var um 27 milljónir. Í ár fengu 18 verkefni úthlutað styrk úr sjóðnum en þetta er þriðja úthlutun verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður. Það er ljóst að það er mikill hugur í fólki og mikill kraftur hér í samfélaginu á Stöðvarfirði.
Úthlutun úr frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar
Það er ljóst að það er mikill hugur í fólki og mikill kraftur hér í samfélaginu á Stöðvarfirði. Það má sannarlega sjá á bæði fjölda umsókna sem og gæðum þeirra, mörg spennandi verkefni sem öll sem eitt hafa það að markmiði að styrkja innviðina okkar sem og samfélagið. Verkefnin sem hlutu styrki eru að vanda fjölbreytt og áhugaverð og verður spennandi að fylgjast með framgangi þeirra. Formleg úthlutunarathöfn fór fram á Kaffi Saxa og var boðið upp á stöðfirskt góðgæti.
Hér er list yfir þau verkefni er fengu styrk 2024:
Nafn umsækjanda | Heiti umsóknar | Styrk upphæð |
Kaffibrennslan Kvörn |
Heimasíða, sala á netinu |
650,000 |
Skemmtifélag Stöðvarfjarðar |
Skemmtifélag Stöðvarfjarðar |
700,000 |
Atomic Analog |
3 d fræsari |
500,000 |
Steðjistf ehf |
Tækjakaup |
450,000 |
Rósa Valtingojer |
Keramik og kaffi |
800,000 |
Ungmennafélagið Súlan |
Útilíkamsrækt |
300,000 |
Óstofnað félag um ferðamannamál |
Ferðamannauppbygging á Stöðvafirði |
300,000 |
Lukasz Stencel |
Innrömmun og forvarsla Austurlands |
850,000 |
Landatangi ehf |
Brunaveggur |
350,000 |
HJ ehf |
Kaffihús |
750,000 |
Kimi Tayler |
Brauðdagar |
900,000 |
Guðmundur Hreinsson |
stodvarfjordur.is lokaáfangi |
400,000 |
Rósa Valtingojer |
Minjagripur |
650,000 |
Solveig Friðriksdóttir |
Heilsueflandi dagar á Stöðvarfirði |
400,000 |
Sköpunarmiðstöðin |
Framkvæmdir Fræ Sköpunareldhús |
1,650,000 |
Hlynur Ármannsson |
Saga Stöðvarfjarðar |
500,000 |
Sköpunarmiðstöðin |
Office Space 2.floor |
400,000 |
Sólmundur Friðriksson |
Stöðfirskir bátar og skip 2.áfangi |
800,000 |