Þann 8 mars frá klukkan 11:00 – 14:00 ( íslenskur tími) heldur Samband sveitarfélaga í Eistlandi vefráðstefnu með yfirskriftinni „Greenstorming Webinar. The Norwegian and Icelandic Experiences of Climate and Energy Planning.“
01.03.2022
Vefráðstefna um umhverfismál
Á dagskrá eru spennandi fyrirlestrar þ.á m. frá Fjarðabyggð þar sem fjallað verður um umhverfis- og loftlagsstefnu sveitarfélagsins. Meðfylgjandi er auglýsing ráðstefnunnar og hlekkur á skráningu en frestur til skráningar er til 6.mars.