Vegna steypuvinnu Vegagerðarinnar við brúna yfir Tinnudalsá í Norðurdal í Breiðdal verður vegurinn um dalinn lokaður frá kl. 13:00 – 17:00 í dag mánudaginn 12. október. Búið er að gera ráðstafanir þannig að börn af svæðinu komist heim úr skóla í dag.
Nánari upplýsingar um lokunina eru veittar hjá Vegagerðinni.