Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, verður á næstu dögum með viðtalstíma í bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.
Fundirnir verða sem hér segir:
Eskifirði - mánudaginn 26. mars frá 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Neskaupstað - miðvikudaginn 28. mars frá 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Reyðarfirði - þriðjudaginn 3. apríl frá 16:00 – 18:00 á bæjarskrifstofunni, Hafnargötu 2
Fáskrúðsfirði - miðvikudaginn 4. apríl frá 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Stöðvarfirði - föstudaginn 6. apríl frá 16:00 – 18:00 í Þjónustugátt bókasafnsins.
Viðtalstími í Mjóafirði verður ákveðin í samráði við íbúa.