Sú hefð hefur myndast í Fjarðabyggð undanfarin ár að taka á móti vorinu með umhverfisátaki sem nefnist „Vor í Fjarðabyggð“. Hér á heimasíðunni hefur nú verið gert aðgengilegt efni um Vor í Fjarðabyggð 2021. Þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar, og rafræna útgáfu af vorbæklingi sveitarfélagsins.
Vor í Fjarðabyggð 2021
Hreinsunarvikan verður dagana 21. – 31. maí 2021
Hluti af Vor í Fjarðabyggð hefur verið að vekja íbúa til umhugsunar um umhverfi sitt og hvetja þá til að taka til hendinni í görðum sínum og nær umhverfi.
Dagana 21. - 31. maí verða starfsmenn þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar á ferðinni að hirða upp garðaúrgang sem íbúar setja við lóðamörk.
Almennt annað rusl s.s. brotajárn, plastkör eða annað ótengt garðaúrgangi skal ekki sett saman við.
Vorbæklingur 2021
Í tenglsum við „Vor í Fjarðabyggð“ hefur sveitarfélagið gefið út bækling og dreift til íbúa með gagnlegum upplýsingum um eitt og annað sem tengist vorverkunum og umhverfismálum. Í ár verður sú breyting að bæklingnum verður ekki dreift í hús, heldur verður hann aðgengilegur með rafrænum hætti á heimsíðu Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is og á Facebook síðu sveitarfélagsins.
Vorbæklingur - Vor í Fjarðabyggð 2021
Látum nú hendur standa fram úr ermum, öll sem eitt og sameinumst um að fegra okkar nánast umhverfi fyrir sumarið!