Hópur starfsmanna Fjarðabyggðar hefur undanfarið setið árlega vorráðstefnu Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins á Hótel Nordica 9.-10. Maí. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er “Framtíðin er núna ! - Snemmtæk íhlutun barna með þroskafrávik”
10.05.2019
Vorráðstefna Greiningar og ráðgjafastöðvar ríkisins
![Vorráðstefna Greiningar og ráðgjafastöðvar ríkisins Vorráðstefna Greiningar og ráðgjafastöðvar ríkisins](/media/frett-svanhvit.jpg?w=600)
Yfir 400 gestir sækja ráðstefnuna að þessu sinni. Vorráðstefnan er stærsti faglegi vettvangur þeirra sem tengjast börnum með þroskafrávik.
Snemmtæk íhlutun er lykilatriði í þjónustu við ung börn með raskanir í taugaþroska. Hún byggir á því að hægt er að móta taugakerfi barna fyrstu árin og með markvissum vinnubrögðum er hægt að hafa jákvæð áhrif á þroska, hegðun og færni barnanna.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hefur frá upphafi lagt áherslu á að kenna snemmtækar íhlutunarleiðir fyrir börn með þroskafrávik og síðastliðið haust var hugtakið fest í sessi í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Það er því vel við hæfi að helga vorráðstefnuna í ár þessum vinnubrögðum og ýmsu sem þeim tengjast.