Velferðarnefnd Alþingis sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna færslu á rekstri hjúkrunarheimila frá sveitarfélögunum til ríkisins. Yfirlýsingin var samþykkt samhljóða af öllum nefndarmönnum. Í yfirlýsingunni lýsir velferðarnarnefnd yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp vegna yfirfærslunnar og hvetur stjórnvöld til að standa vörð um atvinnu starfsmanna, réttindi þeirra og kjör.
Fjarðabyggð fagnar þessari yfirlýsingu velferðarnefndar, og tekur heilshugar undir áhyggjur hennar af þeirri stöðu sem uppi er í málinu.
Yfirlýsing frá Velferðarnefnd Alþingis
Velferðarnefnd Alþingis lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem nú er komin upp vegna færslu á rekstri hjúkrunarheimila frá sveitarfélögum til ríkisins.
Velferðarnefnd Alþingis hvetur stjórnvöld til að ganga þannig frá yfirfærslunni að starfsfólki sé tryggð áframhaldandi atvinna og réttindi þess og kjör séu tryggð líkt og fordæmi er fyrir við sambærilega yfirfærslu og að m.a. verði horft til þeirra lagareglna sem finna má í lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 72/2002.
Telji stjórnvöld lagasetningu nauðsynlega er velferðar nefnd reiðubúin að koma að því og mun gera sitt til að tryggja hraðan framgangs slíks frumvarps innan nefndarinnar ef af yrði eða leggja slíkt frumvarp fram í nafni nefndarinnar. Nefndin bendir á að mikilvægt er að lausn fáist sem fyrst í málinu, enda skammur tími til stefnu, og mikilvægir hagsmunir vinnandi fólks í húfi, sem og þjónusta við viðkvæma skjólstæðinga.